Vefdagbók
Myndaalbúm
Kveðjur frá gestum
Gullkorn
Dagbók barnsins
Blíða
Blíða
Þessi yndilegi hundur okkar er á lóðaríi núna eins gott að passa hana svo hún fari nú ekki að koma með hvolpa 8 mánaða gömul, en hún er bara dugleg og góð.
0 | 28.3.2008 19:59:17 #

Blíða kom til okkar í gær, föstudaginn 28/9. Ég var sótt til mömmu minnar og systkyna og svo var farið með mig á rúntinn í smástund og ég þoldi það ekki vel og ældi smá, en mér leið strax betur. Svo fór ég heim til mín og það var mikil gleði á heimilinu og leikið heillengi þannig að ég var orðin dauðþreytt. Mamma heimtaði að ég fengi núna frið og lét mig inn í búrið sem að Tryggur átti einu sinni og þar lagðist ég niður og svaf eins og steinn. Hurðin var opin á búrinu og ég lét mér ekki detta í hug að fara út úr því. Svo þegar ég þurfti að kúka og pissa í gærkvöldi þá vældi ég við hurðina, því ég er svo dugleg. Svo lagðist ég bara upp í rúm með systrum mínum og fór að sofa með þeim og ég svaf í alla nótt og sakna greinilega ekkert voffa mömmu minnar og systkyna. þessi litla dúlla er yndisleg og algjört gæðablóð.
0 | 29.9.2007 08:07:01 #

Voffalína

0 | 0 | 26.9.2007 20:23:49 #
Voffalína kemur á laugardaginn :)
0 | 26.9.2007 20:09:35 #

Ég ætla nú að vera first til að skrifa í gestabókina þína voffalína mín, kalla þig það því við erum ekki búin að finna nafn á þig enn þá :)
Guðborg Eyjólfsdóttir | 0 | 26.9.2007 20:05:42 #